Fotbolti.net
08.11.26 - 21:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Sjáðu markið: Óstöðvandi Kristall skoraði stórglæsilegt mark

Sjáðu markið: Óstöðvandi Kristall skoraði stórglæsilegt mark
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Kristall Máni Ingason skoraði glæsilegt mark í 2-2 jafntefli Brann gegn Fredrikstad í norsku deildinni í kvöld.

Fredrikstad náði tveggja marka forystu en Kristall minnkaði muninn á 82. mínútu þegar hann skoraði með utanfótarskoti í fjærhornið úr teignum. Brad Finne bjargaði stigi fyrir Brann með marki á sjöttu mínútu í uppbótatíma.
Kristall hefur skorað þrjú og lagt upp tvö mörk í síðustu fimm leikjum. Sævar Atli Magnússon var einnig í byrjunarliðinu en hann var tekinn af velli á 75. mínútu fyrir Finne. Eggert Aron Guðmundsson og Kjartan Már Kjartansson eru meiddir. Brann er í 7. sæti með 33 stig eftir 26 umferðir.

Lúkas Petersson var í markinu hjá varaliði Hoffenheim sem vann 1-0 sigur á Wurzburger Kickers í C-deildinni í Þýskalandi. Hoffenheim er í 9. sæti með 19 stig eftir 13 umferðir.

Willum Þór Willumsson kom inn á sem varamaður á 88. mínútu í 3-2 sigri NEC Nijmegen gegn Utrecht í hollensku deildinni. NEC er í 11. sæti með 14 stig eftir 12 umferðir.

Sigurður Bjartur Hallsson kom inn á sem varamaður í 2-0 sigri AD Merida gegn varaliði Athletic Bilbao í spænsku C-deildinni. AD Merida er í 8. sæti með 16 stig eftir 11 umferðir.

Sjáðu markið hans Kristals hér fyrir neðan.


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.