10.01.06 - 19:45
Magnús Már Einarsson
ÍR semur við Erling, Guðfinn og Elvar (Staðfest)

Erlingur Þór, Guðfinnnur og Elvar Lúðvík skrifa undir í dag.

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Erlingur Þór, Guðfinnnur og Elvar Lúðvík skrifa undir í dag.

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Þróttararnir, Erlingur Þór Guðmundsson og Guðfinnur Þórir Ómarsson gerðu í dag tveggja ára samning við lið ÍR úr annarri deild en þeir skrifuðu undir samningana í ÍR-heimilinu nú síðdegis.
Auk þessara tveggja leikmanna þá hefur varnarmaðurinn Elvar Lúðvík Guðjónsson gert tveggja ára samning við ÍR en hann hefur leikið með liðinu undanfarin tvö sumur.
Þá hefur fyrirliðinn og reynsluboltinn Arnar Þór Valsson ákveðið að leika með liðinu næsta sumar auk þess sem sóknarmaðurinn Brynjólfur Bjarnason er á leið til félagsins frá Selfyssingum.
Þá hefur fyrirliðinn og reynsluboltinn Arnar Þór Valsson ákveðið að leika með liðinu næsta sumar auk þess sem sóknarmaðurinn Brynjólfur Bjarnason er á leið til félagsins frá Selfyssingum.
