Fotbolti.net
10.01.07 - 06:00
Magnús Már Einarsson
Ítalska deildin

Wilhelmsson til Roma á láni (Staðfest)

Wilhelmsson til Roma á láni (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Andri Janusson

Roma hefur fengið sænska kantmanninn Christian Wilhelmsson að láni út þetta tímabil frá Nantes en gengið var frá samningum í gær eftir að leikmaðurinn stóðst læknisskoðun.
Roma mun eiga möguleika á að kaupa Wilhelmsson á þrjár milljónir evra að lánstímanum liðnum en hann myndi þá gera fjögurra ára samning við ítalska liðið sem er í öðru sæti Serie A sem stendur, sjö stigum á eftir toppliði Inter.

Wilhelmsson er sænskur landsliðsmaður en hann skoraði meðal annars sigurmark Svía í 2-1 sigri þeirra á Íslendingum á Laugardalsvelli í haust.

,,Hann er stór vængmaður sem getur spilað í þremur mismunandi stöðum fyrir aftan framherjann og hann er fljótur," sagði Luciano Spalletti þjálfari Roma um Wilhelmsson sem er annar leikmaðurinn sem félagið fær í mánuðinum, Francesco Tavano hafði áður komið á láni frá Valencia.

Heimild: AP

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.