Fotbolti.net
10.01.08 - 15:13
Magnús Már Einarsson

Enckelman til Cardiff á láni (Staðfest)

Enckelman til Cardiff á láni (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Cardiff City sem leikur í ensku Championship deildinni hefur fengið Peter Enckelman markvörð Blackburn Rovers á láni út tímabilið.
Kasper Scmeichel hefur varið mark Cardiff undanfarnar vikur en hann er farinn aftur til Manchester City eftir að lánssamningi hans lauk.

Enckelman, sem er þrítugur Finni, hefur verið í fjögur ár hjá Blackburn en fengið fá tækifæri.

Hann kom frá Aston Villa á 150 þúsund pund á sínum tíma en hefur einungis verið tvívegis í byrjunarliði Blackburn í ensku úrvalsdeildinni síðan þá.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.