Fotbolti.net
10.01.08 - 18:46
Hafliði Breiðfjörð

Barry Smith farinn frá Val til Greenock Morton í Skotlandi (Staðfest)

Barry Smith í leik með Val gegn Keflavík í Landsbankadeildinni í fyrrasumar.

Barry Smith í leik með Val gegn Keflavík í Landsbankadeildinni í fyrrasumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Varnarmaðurinn Barry Smith sem lék með Val í Landsbankadeildinni undanfarin tvö sumur gekk í dag í raðir Greenock Morton í skosku 1. deildinni og fær leikheimild með liðinu á morgun. Hann útilokar hinsvegar ekki að spila aftur með Val næsta sumar ef hann nær samningum við félagið enda verður hann aðeins stutt hjá Morton.
,,Þetta gæti verið fram í lok apríl en verður líklega bara fram í lok mars," sagði Barry Smith í samtali við Fótbolta.net í dag. ,,Ég ræddi við Val um þetta og þeir voru sáttir við það," bætti hann við.

Smith sem er 34 ára gamall var samningbundinn val fram til 16. október í fyrra og á nú í viðræðum við félagið um hvort hann komi aftur.

,,Ég er enn í viðræðum við Val um samning og það á enn eftir að ræða nokkur atriði," sagði hann . ,,Valur er eina liðið sem ég er að ræða við sem stendur. Ég kem aftur í sumar ef við komumst að samkomulagi en núna er ég bara að bíða eftir að Valur hafi samband."

Barry Smith hefur leikið með Val undanfarin tvö ár eða síðan hann kom til félagsins frá Dundee í Skotlandi vorið 2006 eftir 11 ára veru hjá skoska félaginu. Áður en hann hætti hjá Dundee hafði hann stýrt liðinu tímabundið út tímabilið eftir að þjálfarinn var rekinn. Hann sagði frá því í fyrra að Valur hafi boðið sér tveggja ára samning og hann gæti komið að þjálfun hjá félaginu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.