Fotbolti.net
10.02.06 - 09:14
Magnús Már Einarsson

Þorvaldur Már til ÍR (Staðfest)

Þorvaldur Már var markahæstur í 1.deild árið 2002 með tólf mörk fyrir Aftureldingu.

Þorvaldur Már var markahæstur í 1.deild árið 2002 með tólf mörk fyrir Aftureldingu.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Andri Janusson

Lið ÍR úr annarri deild hefur krækt í sóknarmanninn Þorvald Má Guðmundsson. Þessi 28 ára gamli leikmaður lagði skónna á hilluna eftir síðustu leiktíð en hann hefur nú ákveðið að taka þá fram að nýju.
Þorvaldur sem hefur meðal annars leikið með Aftureldingu og Víkingi hér á landi var síðast á mála hjá Haukum þar sem hann skoraði fimm mörk í átta leikjum í fyrstu deild síðastliðið sumar.

ÍR-ingar hafa verið að styrkja sig að undanförnu en auk Þorvalds þá fékk liðið Guðfinn Þóri Ómarsson og Erling Þór Guðmundsson frá Þrótti nú í vetur.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.