Ný-Sjálendingurinn Betsy Doon Hassett hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna eftir farsælan feril en þetta staðfestir Stjarnan á samfélagsmiðlum sínum.
Betsy kom til Stjörnunnar árið 2020 frá Wellington Phoenix og lék á þeim tíma yfir 100 leiki í búningi félagsins.
Stjarnan var þarna að fá gæðaleikmann sem var fastakona í landsliði Nýja-Sjálands og hafði spilað með félögum á borð við Manchester City, Werder Bremen, Ajax og SC Sand.
Einnig lék hún þrjú tímabil með KR-ingum frá 2017 til 2019. Alls lék hún 165 leiki og skoraði 22 mörk fyrir KR og Stjörnuna.
„Við viljum þakka Betsy innilega fyrir ómetanlegt framlag hennar til félagsins og óskum henni velfarnaðar í öllu því sem hún tekur sér fyrir hendur í framtíðinni og vonum að leiðir okkar liggi saman á ný, með einum eða öðrum hætti,“ segir meðal annars í yfirlýsingu Stjörnunnar.
Ferill Betsy er magnaður en hún lék 160 A-landsleiki fyrir Nýja-Sjáland og skoraði 16 mörk. Hún er áttundi leikjahæsti leikmaður í sögu landsliðsins og fór fjórum sinnum með landsliðinu á HM og á þrenna Ólympíuleika.
Betsy varð deildabikarmeistari með Man City árið 2014 og vann tvennuna með Ajax árið 2017.
IFFHS (International Football Federation of history and statistics) valdi hana þá í lið áratugarins í Eyjaálfu yfir tímabilið 2011 til 2020.
Goðsögn að kveðja leikinn en tilkynningu Stjörnunnar má sjá hér fyrir neðan.
Athugasemdir



