Man Utd reynir við Ndiaye ef Barca kaupir Rashford - Reitz og Tonali orðaðir við Man Utd - Tekur Zidane við Real Madrid í þriðja sinn?
banner
   þri 10. febrúar 2026 17:30
Elvar Geir Magnússon
Enski boltinn henti sér betur en sá ítalski
Mynd: EPA
Spænski bakvörðurinn Alex Jimenez er alfarið genginn í raðir Bournemouth eftir að hafa upphaflega komið á láni frá AC Milan. Þessi tvítugi leikmaður segist hafa óttast takmarkaðan spiltíma hjá Milan og því farið til enska félagsins.

Hann er með eitt mark og eina stoðsendingu í 23 leikjum með Bournemouth í öllum keppnum á þessu tímabili og segist ánægður með lífið innan sem utan vallar.

„Það er allt mun rólegra en í Mílanó eða Madríd, það hefur hjálpað mér að einbeita mér enn meira að fótboltanum. Fjölskyldan býr hjá mér og ég á mjög rólegt daglegt líf," segir Jimenez við Mundo Deportivo.

„Á Ítalíu er fótboltinn hægari og taktískari en í ensku úrvalsdeildinni. Hér vegur líkamlegi þátturinn meira og hraðinn er meiri, maður þarf að vera vel undirbúinn líkamlega. Miðað við mína kosti þá líður mér betur í þannig boltan, enska úrvalsdeildin hentar mér betur."

Jimenez útskýrði af hverju hann ákvað að yfirgefa Milan síðasta sumar, eftir að hafa spilað 34 leiki með liðinu.

„Ég talski að ég myndi ekki fá þann spiltíma sem ég vil fá þetta tímabilið og þetta tækifæri kom upp. Ég sá þetta sem tækifæri og tel mig vera að nýta það vel. Ég hef alltaf notið þess að horfa á ensku úrvaldeildina og var spenntur fyrir liðinu eftir það sem ég hafði séð síðasta tímabil."
Athugasemdir
banner
banner
banner