Chelsea bætist í kapphlaupið um Nunez - City tilbúið að borga 70 milljónir fyrir Livramento - Liverpool og Real Madrid slást um Schlotterbeck
   þri 10. febrúar 2026 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Jón Jökull semur við Stokkseyri (Staðfest)
Mynd: Stokkseyri
Jón Jökull Þráinsson er kominn aftur í Stokkseyri en hann kemur til félagsins frá Ægi.

Jón Jökull er fæddur árið 1997 og þekkir vel til á Stokkseyri eftir að hafa spilað fimm tímabil með liðinu frá 2020 til 2024.

Hann lék með Ægi er liðið kom sér upp í Lengjudeildina á síðustu leiktíð en hann spilaði þrjá deildarleiki, tvo í Fótbolta.net bikarnum og einn í Mjólkurbikarnum.

Stokkseyri tilkynnir á Facebook að Jón Jökull sé mættur aftur til félagsins.

Stokkseyri spilar í 5. deildinni og hafnaði í neðsta sæti B-riðils á síðasta ári.


Athugasemdir
banner