Varnar- og miðjumaðurinn Jón Óskar Sigurðsson er genginn til liðs við Magna en hann skrifaði undir tveggja ára samning við félagið um helgina.
Jón Óskar er fæddur árið 1999 og uppalinn hjá Þór og steig sín fyrstu skref með meistaraflokki árið 2018.
Þaðan hélt leiðin í Tindastól og síðar KF áður en hann samdi við Magna árið 2021.
Hann spilaði tvö tímabil á Grenivík þar sem hann lék 34 leiki, en síðast lék hann i 5. deildinni með Samherja árið 2024 þar sem hann skoraði eitt mark í fimm leikjum.
Magni mun spila í 2. deildinni í sumar eftir að hafa hafnað í öðru sæti 3. deildarinnar á síðustu leiktíð.
Athugasemdir

