Man Utd reynir við Ndiaye ef Barca kaupir Rashford - Reitz og Tonali orðaðir við Man Utd - Tekur Zidane við Real Madrid í þriðja sinn?
   þri 10. febrúar 2026 11:23
Elvar Geir Magnússon
Lalli Grétars tekur við Skallagrími (Staðfest)
Lárus Grétarsson er lengst til vinstri á myndinni.
Lárus Grétarsson er lengst til vinstri á myndinni.
Mynd: Skallagrímur
Þjálfarinn reynslumikli Lárus Grétarsson er tekinn við þjálfun Skallagríms í Borgarnesi. Liðið leikur í 5. deild.

Tilkynning Skallagríms:
Lárus, eða Lalli eins og hann er jafnan kallaður, býr yfir mikilli reynslu af þjálfun og hefur komið að uppbyggingu og þjálfun fjölmargra öflugra leikmanna í gegnum tíðina. Þar má meðal annars nefna leikmenn sem hafa spilað í Bestu deildinni, svo sem Helgi Guðjónsson og Már Ægisson. Einnig hefur hann þjálfað leikmenn sem farið hafa í atvinnumennsku, til dæmis Aron Jóhannsson, Mikael Egil Ellertsson og Viktor Bjarka Daðason.

Árið 2016 var Lárus þjálfari sameiginlegs liðs Fram og Skallagríms og þekkir því vel til þeirra leikmanna sem komu úr því samstarfi.

Birgir Theodór þekkir félagið afar vel. Hann lék með meistaraflokki Skallagríms á árunum 2015, 2016 og 2020 sem og á síðasta tímabili. Hann hefur einnig starfað með Lárusi hjá Fram. Lárus og Birgir hefja störf 1. mars næstkomandi.

Stjórn meistaraflokksráðs lítur á ráðninguna sem stórt og mikilvægt skref í áframhaldandi uppbyggingu fótboltans í Borgarnesi og hlakkar til komandi tímabils. Áfram Skallagrímur!
Athugasemdir
banner
banner