Sænski miðjumaðurinn Chriss-Albin Alexander Mörfelt hefur gengið í raðir Vestra og skrifar undir samning út tímabil. Hann kemur vestur frá Östersund í heimalandinu.
Mörfelt lék þrjá leiki með Östersund í sænsku Superettunni á síðustu leiktíð en þar áður var hann á mála hjá Öster sem leikur í Allsvenskan.
Mörfelt lék þrjá leiki með Östersund í sænsku Superettunni á síðustu leiktíð en þar áður var hann á mála hjá Öster sem leikur í Allsvenskan.
Í tilkynningu Vestra er honum lýst sem leiknum miðjumanni. Hann á að baki landsleiki með yngri landsliðum Svíþjóðar og þá hefur hann einnig æft með U21 landsliði Noregs, en faðir hans er norskur, segir jafnframt í tilkynningu félagsins.
Fyrr í dag tilkynnti Vestri að liðið hafi samið við Breka Þór Hermannsson á láni út tímabilið frá ÍA.
Vestri féll úr Bestu deildinni síðasta haust en varð bikarmeistari og mun því spila í forkeppni Evrópudeildarinnar í sumar.
Vestri
Komnir:
Pape Abou Cisse frá Katar
Þórður Gunnar Hafþórsson frá Aftureldingu
Marvin Darri Steinarsson frá Gróttu
Imran Mehanovic frá Danmörku
Jacob Stensson frá Svíþjóð
Konstantin Cheshmedjiev frá Norður-Makedóníu
Breki Þór Hermannsson frá ÍA (á láni)
Farnir:
Diego Montiel í KA
Jeppe Pedersen í KA
Guy Smit í Njarðvík
Morten Ohlsen Hansen
Anton Kralj til Keflavíkur
Eiður Aron Sigurbjörnsson í Njarðvík
Ágúst Eðvald Hlynsson í Þór
Gustav Kjeldsen í Stjörnuna
Arnór Borg Guðjohnsen í FH (var á láni)
Vladimir Tufegdzic
Samningslausir:
Benjamin Schubert
Silas Songani
Matias Niemela (var láni hjá Grindavík)
Athugasemdir



