10.03.07 - 05:59
Magnús Már Einarsson
Reynir Sandgerði fær þrjá leikmenn (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Reynir Sandgerði úr fyrstu deild karla hefur fengið til sín þrjá leikmenn en þetta staðfesti Guðmundur Rúnar Jónsson framkvæmdastjóri knattspyrnudeildar liðsins við Víkufréttir í gær.
Reynismenn hafa fengið markvörðinn Atla Jónasson á láni frá KR en við greindum frá því í gær að þessi efnilegi markvörður væri á leið til Sandgerðinga.
Þá hafa Reynismenn fengið Anton Inga Sigurðsson á láni frá FH en hann verður tvítugur í ár auk þess sem að Sandgerðingar hafa fengið Jóhann Magni Jóhannsson til baka frá Framherjum.
Bandarísku sóknarmennirnir Rodney Perry og Uche Asika sem léku með Víkingi og Þrótti Reykjavík síðastliðið sumar hafa æft með Reynismönnum að undanförnu en ekki hefur verið ákveðið hvort að þeir muni fá samning hjá félaginu.

Heimild: Víkufréttir