Valur hefur tilkynnt um komu Norðmannsins Marius Lundemo til félagsins. Hann gerir tveggja ára samning við Val.
Lundemo er miðjumaður fæddur árið 1994 en hann hefur reynslu úr efstu deild í Noregi. Hann vann fjölda titla með Rosenborg og lék síðast með Lilleström.
Tilkynningin frá Val:
„Það er okkur mjög mikilvægt að fá inn leikmenn sem hafa unnið titla,” segir Björn Steinar Jónsson, formaður knattspyrnudeildar Vals.
„Við höfum lagt mikið á okkur við að tryggja okkur krafta Lundemo, enda hefur hann lengi verið efstur á óskalista okkar þegar kemur að djúpum miðjumanni. Lundemo er klárlega leikmaður úr efstu hillu sem mun koma til með að styrkja hópinn okkar allverulega.“
Lundemo er nú þegar mættur til liðsins í æfingaferð Vals á Marbella á Spáni, þar sem hann mun undirbúa sig með liðinu fyrir komandi átök. Lundemo segist ánægður með ákvörðunina um að ganga til liðs við Val og hlakkar til þess að fara að vinna leiki.
„Ég ákvað að velja Val þrátt fyrir að hafa fleiri möguleika í stöðunni,” segir Marius Lundemo.
„Ég kynnti mér félagið vel, átti fundi með forsvarsmönnum og þjálfara og ræddi síðan við leikmenn. Það er greinilega hugur í mönnum að gera vel í ár og ég held að mínir hæfileikar sem leikmaður geti nýst liðinu vel. Það verður gaman að flytja til Íslands og taka þátt í þessu ævintýri bæði í Bestu deildinni en líka í Evrópukeppninni.“
Arnór Smárason sem starfar sem tæknilegur ráðgjafi stjórnar knattspyrnudeildar þekkir vel til Lundemo.
„Þetta er leikmaður sem er búinn að gera allt í Noregi og það er ekki á hverjum degi sem leikmenn með svona prófíl velja að koma til Íslands. Hann býr yfir eiginleikum sem þú vilt sjá í djúpa miðjumanninum þínum og ég er ekki í nokkrum vafa um að hans hæfileikar muni nýtast frábærum leikmönnum Vals í sumar.“
Stjórn Knattspyrnudeildar Vals býður Marius Lundemo hjartanlega velkominn til Vals.
Athugasemdir