Carney Chukwuemeka, leikmaður Borussia Dortmund, hefur fengið leikheimild með austurríska landsliðinu fyrir HM í sumar.
Chukwuemeka var talinn eitt mesta efni Englendinga en hann kemur úr akademíu Chelsea og lék fyrir yngri landslið Englands, frá U17 til U20.
Chukwuemeka var talinn eitt mesta efni Englendinga en hann kemur úr akademíu Chelsea og lék fyrir yngri landslið Englands, frá U17 til U20.
Foreldrar Chukwuemeka eru báðir nígerískir en hann fæddist í austurríska bænum Eisenstadt árið 2003. Hann bjó í Austurríki fyrstu ár ævi sinnar, áður en fjölskyldan fluttist til Englands.
Þar sem Chukwuemeka hefur ekki leikið A-landsleik fyrir England þá má hann samkvæmt FIFA reglum skipta yfir í Austurríki.
Ralph Rangnick er þjálfari Austurríkis og er þjóðin með Alsír, Jordaníu og ríkjandi heimsmeisturum Argentínu í riðli á HM.
Athugasemdir


