Fotbolti.net
10.04.06 - 14:07
Stefán Guðberg Sigurjónsson

Khizanishvili til Blackburn (Staðfest)

Khizanishvili fagnar hér marki sínu gegn Huddersfield í deildarbikarnum

Khizanishvili fagnar hér marki sínu gegn Huddersfield í deildarbikarnum

Canon

Mynd: Getty Images

Zurab Khizanishvili, varnarmaður, gekk í dag í raðir Blackburn Rovers frá Glasgow Rangers en hann hefur verið í láni hjá Blackburn á þessu tímabili og spilað vel á Ewood Park. Khizanishvili er 24. ára varnarmaður og er frá Gerorgíu.
,,Allt er klárt, ég er núna Rovers leikmaður og ég er mjög ánægður að vera áfram hérna. Það var draumur að spila í ensku úrvalsdeildinni og vera að berjast í toppbaráttunni. Þetta er mjög vinalegur klúbbur og ég er ánægður að skrifa undir hérna. Mér hlakkar til að vera hérna í nokkur ár í viðbót,” sagði Khizanishvili.

Hann gekk til liðs við Blackburn á lánsamningi síðasta sumar og hefur spilað 27 leiki með Rovers og skorað í þeim eitt mark. Blackburn hefur spilað fram úr öllum væntingum á tímabilinu og er nú í fimmta sæti deildarinnar, einu stigi á undan Arsenal og fjórum stigum á eftir Tottenham.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.