10.04.08 - 12:12
Hafliði Breiðfjörð
Bjarni Þorsteinsson í Þrótt (Staðfest)

Bjarni Þorsteinsson í leik með KR gegn Þrótti í undanúrslitum bikarsins 2006.

Mynd: Fótbolti.net - Hjalti Þór Hreinsson

Varnarmaðurinn Bjarni Óskar Þorsteinsson er genginn í raðir Þróttar en þetta staðfesti félagið á vefsíðu sinni í dag. Bjarni sem er fyrrverandi landsliðsmaður Íslands lék síðast í efstu deild með KR sumarið 2006 er hann lék tvo leiki en hætti vegna meðisla. Hann lék nokkra leiki með Gróttu í 3. deild í fyrra en var við nám í Danmörku og gat því ekki beitt sér að fullu.
Bjarni er 31 árs gamall og hefur lengst af sínum ferli leikið sem bakvörður. Hann hefur leikið stærsta hluta síns ferils með KR. Tímabilið 1999 – 2000 lék Bjarni með KFC Uerdingen í Þýskalandi en liðið lék þá í 3. Deild.
Árið 2001 gekk hann til liðs við Molde í norsku úrvalsdeildinni og lék með liðinu til ársins 2003. Bjarni átti við meiðsli að stríða sumarið 2006 þegar hann lék með KR. Endaði það þannig að hann lék aðeins tvo leiki með liðinu um sumarið og tók sér frí frá knattspyrnu um haustið og hélt utan til náms. Í fyrra lék Bjarni nokkra leiki með Gróttu.
Bjarni er mjög leikreyndur leikmaður sem hefur leikið fjölda evrópuleikja og á auk þess 10 A landsleiki ásamt 14 landsleikjum með yngri landsliðunum.
Í dag er Bjarni laus frá öllum meiðslum og kemur vafalaust sterkur til liðs við Þrótt nú í vor, en Bjarni er væntanlegur heim til Íslands úr námi um mánaðarmótin maí - júní.
Þróttarar tilkynntu einnig í dag að Bjarni Sigurðsson muni verða markmannsþjálfari hjá meistaraflokki karla í sumar.

Heimild: Vefsíða Þróttar