10.04.08 - 22:19
Magnús Már Einarsson
Igor Dilocapic til ÍA (Staðfest)

Guðjón Þórðarson þjálfari ÍA.

Mynd: Fótbolti.net - Gísli Baldur

Guðjón Þórðarson þjálfari ÍA.

Mynd: Fótbolti.net - Gísli Baldur
ÍA hefur gert samning við króatíska leikmanninn Igor Dilocapic en þetta kemur fram á heimasíðu félagsins í kvöld.
Igor, sem er 27 ára gamall, hefur samið við ÍA út tímabilið en í vetur hefur hann leikið í annarri deildinni í Króatíu.
Hann hefur verið til skoðunar hjá ÍA undanfarna daga en þessi örfætti leikmaður lék meðal annars æfingaleik gegn Víkingi Reykjavík í fyrrakvöld.
,,Ég er mjög ánægður með það að Igor er genginn til liðs við okkur og líst mér mjög vel á hann. Hann gefur okkur möguleika vinstra megin á miðjunni eða sem vinstri útherji," sagði Guðjón Þórðarson þjálfari ÍA við heimasíðu félagsins.
Á heimasíðunni kemur einnig fram að Páll Gísli Jónsson markvörður ÍA meiddist á hné á æfingu í kvöld.
,,Páll Gísli steig illa niður og er hnéið á honum mjög bólgið. Ég er áhyggjufullur yfir þessu en það gæti tekið tvær vikur að átta sig á hversu alvarlegt þetta er, en við vonum að sjálfsögðu það besta," sagði Guðjón.

Heimild: Heimasíða ÍA