10.05.08 - 06:00
Magnús Már Einarsson
KFS fær tvo Bandaríkjamenn (Staðfest)

Hjalti Kristjánsson þjálfari KFS.

Mynd: Fótbolti.net - Davíð Egilsson

Hjalti Kristjánsson þjálfari KFS.

Mynd: Fótbolti.net - Davíð Egilsson
3.deildarlið KFS frá Vestmannaeyjum hefur fengið tvo Bandaríkjamenn til liðs við sig. Um er að ræða Michael Brown og Shawn Dixon en þeir hafa leikið í háskóla í Atlanta í vetur.
Í fyrra komu leikmennirnir til Reynis Sandgerði en þeir skiptu snemma sumars um félög, Brown fór til GG en Dixon gekk til liðs við Leikni Fáskrúðsfirði. Brown er 25 ára sóknartengiliður en Dixon er 23 ára framherji.
KFS hefur verið að styrkja sig að undanförnu og liðið hefur alls fengið nítján nýja leikmenn á þessu ári. Auk Bandaríkjamannanna fékk liðið í vikunni Magnús Stefánsson til liðs við sig en hann leikur handbolta með KA og er um það bil tveir metrar á hæð.
Þá er KFS einnig að fá tyrkneskan leikmann en þetta staðfesti Hjalti Kristjánsson þjálfari liðsins við Fótbolta.net.
Sjá einnig:
Hvað er að frétta af KFS? (22.apríl)