Fotbolti.net
10.06.08 - 15:21
Magnús Már Einarsson

Lazio gengur frá kaupum á Rozehnal (Staðfest)

Rozehnal í landsleik.

Rozehnal í landsleik.

Canon

Mynd: Getty Images

Ítalska félagið Lazio hefur gengið frá kaupum á tékkneska varnarmanninum David Rozehnal en hann kemur til félagsins frá Newcastle.
Rozehnal fann sig ekki á Englandi en hann lék 25 leiki á ferli sínum hjá Newcastle.

Þessi 27 ára gamli leikmaður var lánaður til Lazio í janúar síðastliðnum og forráðamenn félagsins voru það hrifnir að þeir ákváðu að kaupa hann.

Rozehnal kom til Newcastle frá Paris St Germain á 2,9 milljónir punda fyrir ári síðan.

Newcastle segist vera að fá sömu upphæð fyrir söluna á Rozehnal til Lazio og forráðamenn félagsins ganga því væntanlega sáttir frá samningaborðinu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.