Tottenham vill Eze - Belgi orðaður við Arsenal - Man Utd í viðræðum um Rabiot
   mán 10. júní 2024 11:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Will Still tekur við nýju starfi
Will Still.
Will Still.
Mynd: Getty Images
Still heldur áfram að vinna í Frakklandi.
Still heldur áfram að vinna í Frakklandi.
Mynd: Getty Images
Englendingurinn Will Still hefur verið ráðinn stjóri Lens í Frakklandi og skrifar hann þar undir þriggja ára samning.

Still, sem er 31 árs gamall, var mjög umtalaður í fyrra þegar hann stýrði Reims og vakti mikla athygli. Hann er fæddur í Belgíu en á ættir að rekja til Englands.

Þegar hann var ungur spilaði hann tölvuleikinn Football Manager og fékk þá mikla ástríðu fyrir þjálfun. Hann hætti að spila fótbolta þegar hann var 17 ára og fór þá að þjálfa. Hann byrjaði á því að vinna sem aðstoðarþjálfari U14 liðs Preston á Englandi og er núna búinn að vinna sig upp í það að vera aðalþjálfari Reims í frönsku úrvalsdeildinni.

Reims þurfti um tíma að borga sektir fyrir hvern leik sem Still stýrði þar sem hann var ekki með nægilega góð þjálfararéttindi. Hann mátti í raun ekki þjálfa í frönsku úrvalsdeildinni en Reims hafði það mikla trú á honum.

Reims var lengi taplaust á síðasta tímabili, en endað að lokum í ellefta sæti. Reims endaði í níunda sæti á nýafstöðnu tímabili.

Líklegt þótti að Still myndi fara til Englands en hann verður áfram í Frakklandi. Lens hafnaði í sjöunda sæti á tímabilinu sem var að klárast.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner