Fotbolti.net
10.06.25 - 16:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Jói útherji

Musso keyptur til Atletico Madrid (Staðfest)

Musso keyptur til Atletico Madrid (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Atletico Madrid, sem er eitt af 32 liðum sem taka þátt í HM félagsliða, hefur krækt í nýjan markmann.

Juan Musso er kominn til spænsku höfuðborgarinnar og skrifar undir þriggja ára samning. Kaupverðið er talið vera um þrjár milljónir evra.

Hann kemur frá Atalanta en var á láni hjá Atletico á liðinni leiktíð. Hann hefur verið staðfestur í 30 manna hóp liðsins fyrir HM.
Hann kom við sögu í níu leikjum í vetur, var aðalmarkmaður liðsins í spænska Konungsbikarnum í vetur, og hélt alls sex sinnum hreinu.

Hann er 31 árs Argentínumaður sem var áður hjá Udinese og Racing Club. Hann á að baki tvo A-landsleiki.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.