Rayan Cherki er genginn til liðs við Manchester City og skrifar undir fimm ára samning. City borgar 34 milljónir punda fyrir hann.
Cherki er 21 árs gamall franskur sóknarmaður og kemur frá Lyon. Hann átti frábært tímabil með franska liðinu þar sem hann skoraði 12 mörk og lagði upp 20. Alls lék hann 185 leiki fyrir Lyon og skoraði 29 mörk

Hann spilaði sinn fyrsta A-landsleik á dögunum þar sem hann kom inn á og skoraði og lagði upp í 5-4 tapi gegn Spáni í undanúrslitum Þjóðadeildarinnar.
„Það er draumur að skrifa undir hjá félagi eins og Manchester City og fá tækifæri til að taka næsta skref á mínum ferli hérna er mjög sérstakt. Ég hef lagt svo mikið á mig allt mitt líf. Ég elska þessa íþrótt og get ekki beðið eftir því að bæta mig í Manchester með Pep og öllum í þjálfarateyminu," sagði Cherki.
Hann er þriðji leikmaðurinn sem kemur til City í sumar á eftir vinstri bakverðinum Rayan Ait-Nouri frá Wolves og markverðinum Marcus Bettinelli frá Chelsea.
We're delighted to announce the signing of Rayan Cherki ??????
— Manchester City (@ManCity) June 10, 2025
Athugasemdir