Fotbolti.net
10.06.25 - 18:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Tveir fyrrum þjálfarar Liverpool til Man City (Staðfest)

Pep Lijnders ásamt Jurgen Klopp

Pep Lijnders ásamt Jurgen Klopp

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Tveir fyrrum þjálfarar Liverpool hafa verið ráðnir í þjálfarateymi Pep Guardiola hjá Manchester City. Pep Lijnders sem aðstoðarþjálfari og James French sem sérfræðingur í föstum leikatriðum.

Pep Lijnders var í þjálfarateymi Liverpool hjá Brendan Rodgers árið 2014. Hann tók við sem þjálfari NEC Nijmegen árið 2018 en snéri aftur til Liverpool og var m.a. aðstoðarþjálfari Jurgen Klopp en hætti eftir að Klopp lét af störfum í fyrra.
Lijnders tók við sem þjálfari RB Salzburg í kjölfarið en var rekinn eftir sex mánuði í starfi.

French kemur beint frá Liverpool en hann var í teymi liðsins frá 2012. Hans hlutverk var að leikgreina andstæðinga liðsins.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.