10.07.07 - 10:28
Magnús Már Einarsson
Florent Malouda til Chelsea (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Chelsea hefur gengið frá kaupunum á Florent Malouda frá Lyon en kaupverðið hefur ekki verið gefið upp. Þessi 27 ára kantmaður hefur gert fjögurra ára samning við Chelsea.
Malouda mun fara með Chelsea í æfingaferð til Bandaríkjana þar sem að liðið mun meðal annars mæta David Beckham og félögum í LA Galaxy.
Hann gæti því leikið sinn fyrsta leik með Chelsea á laugardag þegar að liðið mætir Club America í fyrsta leik sínum í Bandaríkjaferðinni.
Þessi knái leikmaður hefur fjórum sinnum unnið frönsku deildina með Lyon og á síðasta tímabili var hann valinn bestur í frönsku deildinni en hann sagði í gær að Didier Drogba framherji Chelsea hafi haft áhrif á að hann ákvað að ganga til liðs við enska félagið.
Malouda er fjórði leikmaðurinn sem að Chelsea fær í sumar en áður höfðu Claudio Pizarro, Steve Sidwell og Tal Ben Haim komið frítt til liðsins.

Heimild: BBC