Fotbolti.net
10.07.07 - 17:05
Hörður Snævar Jónsson

Tomasson til Villareal (Staðfest)

Tomasson til Villareal (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Þór Veruson

Villareal hefur fest kaup á Jon Dahl Tomasson. Tomasson kemur frá Stuttgart og skrifar undir tveggja ára samning við félagið. Hann kom til liðsins í janúar á láni en er nú komin endanlega til félagsins.
Tomasson sem er 29 ára gamall og hefur leikið með Newcastle, Feyenoord, og AC Milan skoraði fjögur mörk í 11 leikjum fyrir Villareal á síðustu leiktíð.

Hans hlutverk verður að fylla upp í skarðið sem Diego Forlan skyldi eftir sig þegar hann fór til Atletico Madird. Villareal mun spila í UEFA bikarnum á næstu leiktíð eftir að hafa endað í fimmta sæti í La Liga.

Heimild: Heimasíða FIFA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.