Logi: Það er einhver ólga í belgnum á honum
Auglýsing

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

„Mér fannst við ekki nógu góðir í fyrri hálfleik, við vorum ekki samtaka í því sem við erum búnir að tala um og æfa, og vorum að hálfri ferð að mér fannst,\" sagði Logi Ólafsson, þjálfari Víkings R. eftir 1-1 jafntefli upp á Skaga í kvöld.
„Síðan er þetta þannig að þeir ná marki eftir skyndisókn, sem var klaufalegt af okkar hálfu. En við náðum sem betur fer að jafna.\"

Túfa, leikmaður Víkinga, þurfti að fara af velli, snemma í seinni hálfleiknum. Logi var spurður út í það.
„Hann er veikur. Hann var með ælupest og eitthvað slíkt. Það er einhver ólga í belgnum á honum,\" sagði Logi.
Verða einhverjar breytingar gerðar á Víkingsliðinu í glugganum sem er framundan?
„Það hefur ekkert verið ákveðið í þeim efnum. Við munum sjá til.\"
Viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan.