Fotbolti.net
22.07.26 - 16:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Jón Þór: Að öðru leyti tökum við ekkert úr leiknum nema skít og skömm

Auglýsing
Jón Þór hefur verið í rúman mánuð í starfi hjá Stjörnunni.

Jón Þór hefur verið í rúman mánuð í starfi hjá Stjörnunni.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jón Þór Hauksson, þjálfari Stjörnunnar, kom inn úr rigningunni og ræddi við Fótbolta.net eftir æfingu liðsins í dag. Framundan hjá Stjörnunni er einvígi gegn Ilves í 2. umferð forkeppninnar í Sambandsdeildinni. Fyrri leikurinn gegn finnska liðinu fer fram á Samsungvellinum á morgun.
Ari Leifsson: Ég var með samkomulag við Val
TENGT EFNI

Ari Leifsson: Ég var með samkomulag við Val

„Þetta er hörkulið, vel mannað og finnska deildin er hörkudeild. Þeir áttu frábært tímabil í fyrra, hikstuðu aðeins í upphafi tímabils núna og skiptu um þjálfara fyrir ekki svo löngu síðan. Spænskur þjálfari (Camilo Speranza, fæddur í Úrúgvæ) sem er væntanlega að koma sínu handbragði á liðið. Það er pínu erfitt að lesa í það, en þetta er öflugt lið og vel spilandi," segir Jón Þór. Speranza var aðstoðarþjálfari Watford árið 2025, vann með Paulo Pezzolano þar og hjá Valladolid.

„Hann hefur verið að byggja upp með þremur hafsentum og falla niður í fimm manna vörn. Númer eitt, tvö og þrjú snýst þetta um að við náum okkar allra besta leik fram á morgun."

„Hópurinn lítur mjög vel út og hefur gert vel í því síðustu daga (að skilja leikinn við KR eftir), þessu var bara hent í ruslið vestur í bæ og horft fram á veginn. Það er fullur fókus á þessa leiki sem eru framundan. Það eru stór verkefni sem liðið er að taka þátt í á næstu vikum,"
segir Jón Þór. Síðasti leikur á móti KR endaði með 5-0 tapi og Jón Þór tekur ekkert með sér úr þeim leik.

„Nei, ekkert, og ég lagði áherslu á að sá leikur yrði bara skilinn eftir. Eina sem við tókum út úr honum er álagsstýringin, sumum vantaði mínútur og aðrir þurftu að skipta mínútum á milli sín. Það gekk vel og við komumst vel í gegnum leikinn þannig, en að öðru leyti tökum við ekkert úr leiknum nema skít og skömm."

Hvernig leik má búast við á morgun?

„Ég vil að við sýnum okkar allra bestu hliðar, við þurfum að vera með kveikt á öllu á morgun til þess að koma okkur í eins góða stöðu og hægt er fyrir seinni leikinn. En við þurfum að vera klókir og agaðir í því hvernig við mætum þeim."

Árni Vilhjálmsson var í byrjunarliðinu gegn KR og spilaði sinn fyrsta leik fyrir félagið, Ari Leifsson kom inn á sem varamaður og Christian Bjarmi Alexandersson var kynntur sem nýr leikmaður félagsins í gær.

„Þeir hafa komið virkilega vel inn, Christian kom bara í gær og tók fyrstu æfinguna áðan. Hann lítur vel út, sama með Árna og Ara. Þeir tveir hafa meiri reynslu, þeir láta strax til sín taka. Það er gríðarlega gott að fá þá alla inn."

Ari kom inn í síðasta leik, er hann til í að byrja á morgun?

„Það kemur í ljós á morgun, en hann er alveg tilbúinn í það, hann lítur bara vel út."

Christian Bjarmi er vinstri bakvörður. Er Stjarnan áfram að skoða einhverja stöðu sem þarf að fylla?

„Nei, ég er gríðarlega ánægður með leikmannahópinn. Við erum með stóran og öflugan leikmannahóp, marga góða leikmenn og ég er hæstánægður með það. Það yrði eitthvað mikið að breytast svo það verði einhverjar fréttir frá okkur," segir Jón Þór sem hvetur alla til að koma á völlinn á morgun.

„Það skiptir öllu máli að fá góðan stuðning á morgun. Ég hvet alla sem hafa nokkurn tímann vettlingi valdið að koma, bæði unga sem aldna meðlimi Silfurskeiðarinnar. Það er að birta til hérna í Garðabænum, það er um að gera að koma. Evrópuverkefni hér á Samsung eru skemmtileg, það er forréttindi að fá að taka þátt í því og ég vona að sem flestir komi og taki þátt í því með okkur."

Viðtalið í heild má sjá í spilaranum efst
Jón Þór: Að öðru leyti tökum við ekkert úr leiknum nema skít og skömm
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jón Þór: Að öðru leyti tökum við ekkert úr leiknum nema skít og skömm
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ari Leifsson er klár í að byrja á morgun.

Ari Leifsson er klár í að byrja á morgun.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stjarnan sló út færeyska liðið Víking Götu í 1. umferð forkeppninnar.

Stjarnan sló út færeyska liðið Víking Götu í 1. umferð forkeppninnar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.