Sif Atla: Gaman að því að geta haldið í við þessar ungu stelpur
Auglýsing

Sif Atladóttir.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sif Atladóttir.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sif Atladóttir átti góðan leik þegar Ísland gerði jafntefli gegn Belgíu í fyrsta leik á EM.
„Ég ætla að virða stigið. Ég vildi fá þrjú. Við tökum gott stig á móti sterku liði Belga. Mér fannst frammistaðan verðskulda meira, mér fannst við stjórna leiknum og fá færin. Það vantaði að boltinn myndi detta undir slána eða yfir marklínuna... ég er heilt yfir sátt við leikinn."

Sif hefur að mestu spilað miðvörð á sínum ferli en er að leysa stöðu hægri bakvarðar með landsliðinu. Belgarnir voru með eldsnögga leikmenn að keyra á hana í þessum leik. Hvernig er að takast á við það?
„Það er bara gaman maður," sagði Sif og brosti. „Ég hlýt að geta grafið eitthvað í reynslubankann. Þetta gekk vel. Ég er með góða leikmenn í kringum mig sem hjálpa mikið og tala. Svo reynir maður að nýta reynsluna. Mér fannst við gera það vel sem lið að loka á þeirra styrkleika."
Þessir framherjar hjá Belgíu eru sneggri en Sif en hún náði alltaf að vinna til baka og loka.
„Ég skrifa þetta á reynsluna. Það er gaman að því að geta haldið í við þessar ungur stelpur. Maður er búin að vera lengi í þessu og skilur leikinn vel. En ég geri þetta ekkert ein, ég er með góða liðsfélaga," sagði Sif.
Hægt er að sjá allt viðtalið hér fyrir ofan.