Unglingalandsliðskona semur í Keflavík

Mynd: Keflavík

Mynd: Keflavík

Margrét Viktoría Harðardóttir er búin að skrifa undir sinn fyrsta samning við Keflavík þrátt fyrir að vera aðeins 15 ára gömul.
Margrét þykir mikið efni og leikur fyrir U16 landslið Íslands. Hún hefur fest sig í sessi í byrjunarliði Keflavíkur þrátt fyrir ungan aldur og er búin að byrja alla leiki nema einn í deild og bikar á tímabilinu.
Hún á sex leiki að baki fyrir unglingalandsliðin og lék fyrir 2., 3. og 4. flokk í fyrrasumar.
Margrét er fjölhæfur leikmaður sem getur meðal annars spilað á kanti og í fremstu víglínu. Hún er komin með eitt mark í Lengjudeildinni en Keflavík er í fallbaráttu með 7 stig eftir 8 umferðir.