10.08.06 - 11:11
Stefán Guðberg Sigurjónsson
Bolonos til Charlton á láni (Staðfest)

Bolanos í leik með Deportivo Saprissa

Mynd: Getty Images

Bolanos í leik með Deportivo Saprissa

Mynd: Getty Images
Charlton hafa gengið frá kaupunum á Cristian Bolanos, landsliðsmanni Kosta Ríka, á árs löngum lánssamningi.
Charlton hafa náð samkomulagi við Deportivo Saprissa um að fá hann að láni næstu tólf mánuðina með möguleika á kaupum næsta sumar.
Þessi 22 ára gamli leikmaður, sem var í 10 daga reynslu hjá Liverpool á síðasta tímabili, var í skýjunum yfir að hafa fengið tækifæri í ensku úrvalsdeildinni.
,,Það hefur alltaf verið draumurinn minn að spila í ensku úrvalsdeildinni. Nokkur félög í Evrópu sýndu mér áhuga en ég var mjög ánægður með þann tíma sem ég var hjá félaginu og þeir tóku mjög vel á móti mér,” sagði Bolanos sem stóð sig vel í æfingaleik með Charlton.
,,Ég ætla núna að fljúga til baka til Kosta Ríka til að sækja konununa mína og dóttur og ég veit að þeir munu njóta lífsins hér. Ég gt ekki beðið eftir að tímabilið byrji.”
Bolanos eru þriðju kaup Charlton í vikunni en áður höfðu Djimi Traore hjá Liverpool og Amdy Faye hjá Newcastle gengið til liðs við Ian Dowie og félaga.