10.08.07 - 06:00
Sindri Þór Þorgeirsson
Manchester United lána Shawcross til Stoke (Staðfest)

Shawcross gæti þurft að glíma við Fowler í sínum fyrsta leik með Stoke

Mynd: Getty Images

Shawcross gæti þurft að glíma við Fowler í sínum fyrsta leik með Stoke

Mynd: Getty Images
Stoke City hafa fengið til sín varnarmanninn Ryan Shawcross á láni frá ensku meisturunum í Manchester United næstu 6 mánuðina.
Shawcross sem er 19 ára, er talin mikið efni meðal þjálfaraliðs United og spilaði sinn fyrsta leik fyrir aðallið klúbbsins í deildarbikarnum á síðasta tímabili.
Talið er að Shawcross muni spila sinn fyrsta leik fyrir Stoke á laugardag þegar liðið fer í heimsókn til Robbie Fowler og félaga í Cardiff á fyrsta degi tímabilsins.
Talið er að Shawcross muni spila sinn fyrsta leik fyrir Stoke á laugardag þegar liðið fer í heimsókn til Robbie Fowler og félaga í Cardiff á fyrsta degi tímabilsins.
Heimild: Sky Sports
