10.08.07 - 20:10
Stefán Guðberg Sigurjónsson
Alex til Chelsea (Staðfest)

Alex í leik með PSV

Mynd: Getty Images

Alex í leik með PSV

Mynd: Getty Images
Brasilíski landsliðsmaðurinn Alex hefur gengið til liðs við Chelsea frá PSV Eindhoven og skrifaði hann undir þriggja ára samning eftir að hafa staðist læknisskoðun á Stamford Bridge.
Chelsea hefur lengi verið á eftir þessum nautsterka leikmanni og eftir þrjú tímabil í Hollandi fékk hann atvinnuleyfi í Englandi.
,,Ég vonast til þess að standa mig hjá þessum frábæra klúbbi. Ég er ánægður með það tækifæri sem Chelsea hefur gefið mér,” sagði Alex við Chelsea TV.
,,Ég vonast til þess að aðlagast mjög fljótlega vegna þess að Ricardo Carvalho og Jose Mourinho munu hjálpa mér með tungumálaörðugleika, og ég vonast til þess að byrja strax og að ég lendi ekki í neinum erfiðleikum með að vera í liðinu.”
Alex, sem verður númer 27 hjá Chelsea, hefur spilað fjórtán landsleiki fyrir Brasilíu og var meðal annars í byrjunarliði þeirra á Copa America fyrr í sumar.

Heimild: Sky