Fotbolti.net
10.09.17 - 08:00
Magnús Már Einarsson

Jón Þór: Höfum trú á að við getum bjargað okkur

Auglýsing
Jón Þór Hauksson.

Jón Þór Hauksson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jón Þór Hauksson, þjálfari ÍA, hefur fulla trú á því að liðið geti bjargað sæti sínu í Pepsi-deildinni þó að staðan sé svört. Skagamenn eru níu stigum frá öruggu sæti þegar fimm umferðir eru eftir en KA kemur í heimsókn á Akranes klukkan 17:00 í dag.
„Við höfum trú á því. Það er mikill kraftur í hópnum og við erum einbeittir á leikinn gegn KA. Við höfum notað þetta frí sem hefur verið af krafti. Liðið er í góðu formi og það er mikill hugur í leikmönnum fyrir leikinn,\" sagði Jón Þór við Fótbolta.net.

Jón Þór var aðstoðarþjálfari ÍA en hann tók við liðinu þegar Gunnlaugur Jónsson hætti í síðasta mánuði.

„Það hefur verið skrýtið að koma inn eftir mjög náið samstarf við Gulla. Það var mjög sárt að sjá á eftir Gulla og það hafa verið blendnar tilfinningar. Það er mikill kraftur í hópnum og það er gaman að starfa með liðinu eins og alltaf.\"

Ármann Smári Björnsson, Sigurður Jónsson og Þórður Guðjónsson komu allir inn í þjálfarateymið með Jóni.

„Eðlilega hefur strúkturinn í kringum þessar æfingar breyst aðeins. Það er frábært að fá þessa reynslumikla menn, Sigga og Þórð, inn í þetta. Ármann hefur komið virkilega sterkur inn í hópinn. Hann er fyrrum fyrirliði liðsins og þekkir klefann mjög vel. Hann hefur verið mjög öflugur.\"

Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.

Leikir dagsins
17:00 ÍA-KA (Norðurálsvöllurinn)
17:00 Víkingur R.-Stjarnan (Víkingsvöllur)
17:00 FH-Grindavík (Kaplakrikavöllur)
19:15 Valur-Breiðablik (Valsvöllur)
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.