Rúnar Kristins: Ægir sýndi hvers megnugur hann er
Auglýsing

Rúnar Kristinsson, þjálfari KR

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Rúnar Kristinsson, þjálfari KR

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Breiðablik fékk KR í heimsókn á Kópavogsvöll í kvöld í 8-liða úrslitum Mjólkurbikars karla. KR vann 4-2 sigur og er því komið í undanúrslitin.
<i>„Ég er mjög ánægður með leikinn, við lögðum hann vel upp, strákarnir spiluðu mjög góðan leik og við gerðum fjögur fín mörk. Frábær fótboltaleikur, Blikarnir með hrikalega gott lið og spila frábæran fótbolta og við drógum bara lengsta stráið í kvöld."</i>
Sagði Rúnar Kristinsson, þjálfari KR eftir leik og var mjög ánægður með leik sinna manna í kvöld.

Ægir Jarl Jónasson kom inn í byrjunarlið KR fyrir Pablo Punyed sem var í leikbanni og skoraði tvö mörk. Rúnar var að vonum virkilega sáttur með hans innkomu í liðið.
„Við erum búnir að vera bíða eftir því að Ægir stígi upp og sýni hversu megnugur hann er, hann gerir þetta margoft á æfingum en það var kominn tími til að koma með þetta inn í leik. Hann sýndi það svo sannarlega í kvöld."