Fotbolti.net
10.10.07 - 06:00
Hörður Snævar Jónsson

Gibson á láni frá Man Utd til Wolves (Staðfest)

Gibson á láni frá Man Utd til Wolves (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Manchester Untied hefur lánað Darron Gibson 19 ára miðjumann til Wolves. Hann verður hjá Úlfunum fram í janúar.
Gibson er 19 ára gamall Íri en hann vildi fara til Wolves til að fá að spila með aðalliði en hann hefur verið í varaliðinu hjá United.

,,Darron er efnilegur miðjumaður sem mun koma með samkeppni á miðjuna," sagði Mick McCarthy knattspyrnustjóri Wolves við heimasíðu félagsins.

,,Hann er bara 19 ára en hann er góður leikmaður og er með góðar sendingar," sagði McCharty að lokum.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.