Fotbolti.net
10.10.26 - 16:31
Brynjar Ingi Erluson

Davíð og félagar upp í annað sæti - Lúkas og Júlíus töpuðu

Davíð Kristján lék allan leikinn með Polonia

Davíð Kristján lék allan leikinn með Polonia

Canon

Mynd: Polonia Warszawa

Davíð Kristján Ólafsson og félagar í Polonia Warszawa unnu 2-1 sigur á Arka Gdynia í pólsku B-deildinni í dag.
Polonia vann sinn annan deildarleik í röð og fór upp í annað sæti með 17 stig. Davíð Kristján lék allan leikinn en hann hefur verið fastamaður frá því hann kom frá gríska félaginu Larissa.

Júlíus Mar Júlíusson var í vörn Kristiansund í 3-1 tapi fyrir Bodö/Glimt í norsku úrvalsdeildinni. Kristiansund er í næstneðsta sæti með 19 stig eftir 22 umferðir.

Lúkas Petersson stóð í marki varaliðs Hoffenheim sem tapaði 3-2 fyrir Duisburg í þýsku C-deildinni. Liðið er í sjöunda sæti með 13 stig.

Alfons Sampsted og Stefán Ingi Sigurðarson voru báðir í byrjunarliði Go Ahead Eagles í 3-3 jafntefli við Spörtu Rotterdam. Eagles er í níunda sæti með ellefu stig.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.