Fotbolti.net
10.11.14 - 12:30
Magnús Már Einarsson
Jói útherji

Úrvalslið vikunnar í enska - Þrír frá Newcastle

Fabricio Coloccini er í vörninni.

Fabricio Coloccini er í vörninni.

Canon

Mynd: Getty Images

Uppgangur Newcastle hefur vakið verðskuldaða athygli að undanförnu en liðið vann sinn fjórða leik í röð um helgina.

Þrír leikmenn frá Newcastle eru í liði vikunnar hjá Goal.com að þessu sinni.

Chelsea á tvo fulltrúa eftir sigurinn á Liverpool á Anfield á laugardag.

Þá eiga Aston Villa, Stoke, Liverpool, Swansea og QPR öll einn fulltrúa.


Brad Guzan hélt hreinu og hjálpaði Aston Villa að landa stigi gegn West Ham á útivelli. Daryl Janmaat og Fabricio Coloccini voru báðir öflugir í sigri Newcastle á WBA en hárprúði Argentínumaðurinn skoraði skallamark í leiknum.

Ryan Shawcross hélt Harry Kane framherja Tottenaham niðri í 2-1 sigri Stoke í leik liðanna á White Hart Lane. Cesar Azpilicueta átti síðan enn einu sinni flottan leik með Chelsea í sigri á Liverpool.

Liðsfélagi hans Oscar átti líka góðan leik á Anfield og Remy Cabella var öflugur í sigri Newcastle á WBA. Emre Can skoraði fyrir Liverpool og frammistaða hans var það góð að hann er í liði vikunnar þrátt fyrir tapið gegn Chelsea. Jefferson Montero er síðan á vinstri kantinum en hann var með áætlunarferðir framhjá Calum Chambers í sigri Swansea á Arsenal.

Charlie Austin skoraði fyrra mark QPR í 2-2 jafnteflinu gegn Manchester City en hann hafði fyrr í leiknum tvívegis skorað mörk sem voru dæmd af. Sergio Aguero er með honum frammi í liði vikunnar en hann skoraði bæði mörk City í leiknum.

Sjá einnig:
Fyrri úrvalslið í enska boltanum
Oscar er í liðinu.

Oscar er í liðinu.

Canon

Mynd: Getty Images

Aguero skoraði tvö um helgina.

Aguero skoraði tvö um helgina.

Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.