Fotbolti.net
10.12.06 - 22:59
Hörður Snævar Jónsson

Nenad Petrović í Breiðablik (Staðfest)

Nenad mun leika með Blikum næsta sumar.

Nenad mun leika með Blikum næsta sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sigurbjörn Þorsteinsson

Knattspyrnudeild Breiðabliks samdi í dag við miðjumanninn Nenad Petrović um að hann leiki með Blikum á næsta ári. Nenad er frá Serbíu og er 28 ára gamall. Hann lék með liðinu í gær gegn Fjölni og skoraði seinna mark liðsins í 2-2 jafntefli.
Nenad mun koma til landsins í byrjun janúar og hefja æfingar með liðinu þegar æfingar hefjast á ný 15.janúar.

Hjá Blikum hittir hann landa sína þá Srdjan Gasic og Nenad Zivanovic sem munu leika með Blikum næsta sumar líkt og þeir gerðu á síðasta tímabili.

Blikar eru einnig að skoða þann möguleika að fá til sín Almir Cosic miðjumann frá Leikni Fáskrúðsfirði en það er ekki enn komið á hreint hvort samið verður við hann.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.