11.01.06 - 18:39
Magnús Már Einarsson
Vieri til Monaco (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Ítalski framherjinn Christian Vieri hefur gengið frá eins og hálfs árs samningi við Monaco en hann kemur til liðsins frá AC Milan fyrir óuppgefna upphæð.
Hinn 32 ára Vieri kom frá Inter Milan til grannana í AC Milan í sumar en eftir að hafa aðeins skorað tvö mörk fyrir síðarnefnda liðið er hann nú kominn til Monaco þar sem hann mun spila í framlínunni með landa sínum Marco Di Vaio sem er í láni hjá liðinu frá Valencia.
Vieri hefur sett stefnuna á að vera í ítalska landsliðshópnum á HM í Þýskalandi næsta sumar en hann sagði á balðamannafundi í dag: ,,Að fara á Heimsemeistaramótið er markmiðið en til að ná því verð ég að spila leiki. Mikilvægast fyrir mig er að spila reglulega."
,,Líkamlega hef ég enginn vandamál. Að sjálfsögðu þarf ég leiki en ég er æstur í að spila og sanna mig. Ég hef nokkra reynslu og get ennþá skorað mörk. Ég veit hvað Monaco vill frá mér og ég er tilbúinn fyrir áskorunina."
Michael Pastor forseti Monaco sagði: ,,Við búumst við miklu frá honum (Vieri). Við erum ánægðir með að hafa hann og við vonumst til að hann hjálpi okkur að ná markmiðinu okkar sem er að ná í Meistaradeildina."