11.01.07 - 11:29
Magnús Már Einarsson
Falkirk fær Schmeichel á láni (Staðfest)

Kasper er sonur Peter Schmeichel.

Mynd: Getty Images

Kasper er sonur Peter Schmeichel.

Mynd: Getty Images
Falkirk hefur fengið Kasper Schmeichel markvörð Manchester City að láni út þetta tímabil og mun hann geta leikið sinn fyrsta leik fyrir félagið á laugardaginn, þegar það mætir Dunfermline í skosku úrvalsdeildinni, svo framarlega sem hann fái leikheimild í tæka tíð.
Schmeichel sem er tvítugur hefur áður verið í láni hjá Darlington og Bury. Hann er fjórði markvörður Manchester City og hefur Stuart Pearce stjóri félagsins ákvað að lána hann til Falkirk til að láta hann fá meiri leikreynslu.
,,Að senda unga leikmenn út á lán er reynsla sem þú getur ekki fengið á æfingavellinum eða í varaliðsleikjum. Að spila í skosku úrvalsdeildinni er frábært tækifæri fyrir hann," sagði Pearce.
,,Að senda unga leikmenn út á lán er reynsla sem þú getur ekki fengið á æfingavellinum eða í varaliðsleikjum. Að spila í skosku úrvalsdeildinni er frábært tækifæri fyrir hann," sagði Pearce.
Heimild: BBC
