Fotbolti.net
11.01.07 - 11:48
Magnús Már Einarsson

Traore til Portsmouth (Staðfest)

Traore til Portsmouth (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Portsmouth hefur keypt varnarmanninn Djimi Traore frá Charlton fyrir óuppgefna upphæð en talið er að kaupverðið sé um ein milljón punda.
Traore sem er 26 ára gerði tveggja og hálfs árs samning við Portsmouth en hann gekk kom til Charlton frá Liverpool á tvær milljónir punda síðastliðið sumar.

Traore sem er landsliðsmaður frá Malí hefur ekki fundið sig hjá Charlton, leikið aðeins þrettán leiki á tímabilinu og þá fékk hann meðal annars rauða spjaldið í sínum fyrsta leik með félaginu sínu.

Hann hefur áður leikið með Lavel, Metz og Lens auk Liverpool en hjá síðarnefnda félaginu lék hann 160 leiki og vann meðal annars Meistaradeildina árið 2005.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.