11.01.07 - 12:27
Magnús Már Einarsson
Whittingham til Cardiff (Staðfest)

Peter Whittingham reynir að ná boltanum af Emmerson Boyce.

Mynd: Getty Images

Peter Whittingham reynir að ná boltanum af Emmerson Boyce.

Mynd: Getty Images
Cardiff úr ensku fyrstu deildinni hefur keypt kantmanninn Peter Whittingham frá Aston Villa og er talið að kaupverðið sé um 350 þúsund pund.
Whittingham sem er 22 ára stóðst læknisskoðun hjá Cardiff í gær en hann hefur ekki fengið mörg tækifæri hjá Aston Villa síðan að Martin O'Neill tók við stjórnartaumunum.
,,Ég hef leikið yfir 50 leiki í úrvalsdeildinni og hef svolitla reynslu svo vonandi get ég komið með það inn í liðið," sagði Wittingham ánægður við sjónvarpsstöð Cardiff.
,,Ég hef leikið yfir 50 leiki í úrvalsdeildinni og hef svolitla reynslu svo vonandi get ég komið með það inn í liðið," sagði Wittingham ánægður við sjónvarpsstöð Cardiff.
Heimild: Sporting Life
