Fotbolti.net
11.01.07 - 19:07
Andri Fannar Stefánsson
Ítalska deildin

AC Milan krækja í ungan Argentínumann (Staðfest)

<b>Carlo Ancelotti:</b><br>"Jess, ég náði að klófesta hann"

Carlo Ancelotti:
"Jess, ég náði að klófesta hann"

Canon

Mynd: Getty Images

Milan hafa staðfest að þeir hafa náð að klófesta argentínska vinstri bakvörðinn Leandro Grimi sem er 21 árs. Kaupverðið er óuppgefið en samningurinn gildir til júní 2011.
Ítalska liðið þurfti að bíða eftir leyfi frá argentínska knattspyrnusambandi til að fá að kaupa hann en hann lék með Racing Club de Avellaneda í heimalandinu.

Grimi kíkti á æfingar hjá Milan á meðan á æfingaferð liðsins stóð í Möltu og tók hann þar þátt í æfingaleik gegn svæðisliði. Hann var valinn besti ungi leikmaðurinn árið 2006 á haustmótinu Apertura og Carlo Ancelotti stjóri ítalska liðsins telur sig hafa uppgötvað frábæran leikmann.

,,Grimi er ungur og mjög efnilegur. Mér finnst gott að fáir þekkja hann og ég held að hann verði mjög nothæfur fyrir okkur," sagði Ancelotti, greinilega sáttur.

Grimi gæti verið í hópi liðsins í kvöld ítalska bikarnum gegn Arezzo í fjórðungsúrslitum keppninnar.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.