11.01.07 - 20:59
Stefán Guðberg Sigurjónsson
Ben Thatcher til Charlton (Staðfest)

Thatcher mun án efa styrkja slaka vörn Charlton

Mynd: Getty Images

Charlton hafa keypt varnarmanninn Ben Thatcher frá Manchester City á 500 þúsund pund sem gæti hækkað upp í 750 þúsund pund eftir fjölda leikja sem hann spila fyrir félagið.
Þessi 31 árs gamli leikmaður er ætlað að fylla skarð Djimi Traore í vinstri bakverðinum eftir að hann fór til Portsmouth fyrr í vikunni.
,,Við þurfum að vera harðari ef við ætlum okkur að bjarga okkur úr þessari stöðu. Ég skoðaði Ben, sá að það var hægt að fá hann og að hann gæti bætt okkur," sagði Alan Pardew stjóri Charlton.
Eins og líklega flestir muna eftir komst Thatcher í fyrirsagnirnar fyrr á þessu tímabili þegar hann fékk átta leikja bann fyrir að gefa Pedro Mendes eitt versta olnbogaskot sem sést hefur í enska boltanum.

Heimild: BBC