Fotbolti.net
11.01.07 - 21:28
Stefán Guðberg Sigurjónsson

Rowan Vine til Birmingham (Staðfest)

Rowan Vine er kominn á St. Andrews

Rowan Vine er kominn á St. Andrews

Canon

Mynd: Getty Images

Birmingham hafa gengið frá kaupunum á sóknarmanninum Rowan Vine frá Luton og skrifaði hann undir þriggja og hálfs árs samning á St. Andrews eftir að hafa staðist læknisskoðun.
Birmingham samþykktu að borga óuppgefna upphæð til Luton í dag og þeir voru fljótir að ganga frá kaupunum. Vine hefur spilað vel með Luton á þessu tímabili og höfðu meðal annars West Brom og Cardiff einnig áhuga á kappanum.

Birmingham vildu fá til sín nýjan sóknarmann eftir að hafa misst Nicklas Bendtner, Mikael Forsell og Cameron Jerome í meiðsli og Vine mun án efa hjálpa Steve Bruce og hans mönnum.

,,Ég er ótrúlega ánægður. Ég sé það sem mikið hrós að lið eins og Birmingham, sem eru efstir í deildinni, vilja kaupa mig og ég gat ekki beðið um meira í rauninni," sagði Vine meðal annars á heimasíðu félagsins.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.