11.01.08 - 12:50
Hörður Snævar Jónsson
Anelka genginn í raðir Chelsea (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Chelsea hafa staðfest á vefsíðu sinni að franski framherjinn Nicolas Anelka sé genginn í raðir félagsins eftir að félögin komust að samkomulagi um kaupverð á honum.
Hann á að hafa skrifað undir fjögurra og hálfs árs samning við Chelsea samkvæmt BBC og Sky og er kaupverðið talið vera 15 milljónir punda.
Avram Grant hefur lengi viljað fá Anelka til Chelsea og er líklegt að hann muni spila gegn Tottenham á morgun.
Anelka sem er 28 ára gamall hefur skorað 11 mörk á þessari leiktíð en hann gekk í raðir Bolton frá Fenerbache árið 2006 fyrir 7 milljónir punda.

Heimild: BBC | Sky | Vefsíða Chelsea