11.01.08 - 12:59
Hafliði Breiðfjörð
Martin Skrtel í Liverpool (Staðfest)

Skrtel í baráttu við Raul í landsleik gegn Spánverjum.

Mynd: Getty Images

Liverpool hafa staðfest kaup á slóvaska landsliðsvarnarmanninum Martin Skrtel frá Zenit St Petersburg en samningurinn er til fjögurra og hálfs árs. Skrtel sem er 23 ára gamall miðvörður á að baki 15 landsleiki fyrir hönd Slóvakíu.
Hann verður dýrasti varnarmaðurinn í sögu Liverpool en kaupverðið er talið vera um 6 milljónir punda.
,,Hann er ákveðinn, fljótur og sterkur í loftinu," sagði Rafael Benítez knattspyrnustjóri Liverpool í dag. ,,Mér finnst hann mjög góður leikmaður til framtíðar og líka nú þegar."
,,Ég held að hann sé leikmaður sem ekki margir þekkja en hann spilaði gegn Everton með Zenit St Petersburg og er miðvörður sem þekkir enska stílinn. Hann er mjög mikill keppnismaður en hugarfar hans finnst mér mjög gott."
Benítez telur einnig að Skrtel sé leikmaður sem verði fljótur að aðlagast lífinu á Anfield og hann setur pressu á Jamie Carragher, Sami Hyppia og Daniel Agger sem eru þeir miðverðir sem voru fyrir.

Heimild: BBC