Fotbolti.net
11.01.08 - 16:35
Magnús Már Einarsson

Lyon fær Marc Crosas á láni frá Barcelona (Staðfest)

Lyon fær liðsstyrk.

Lyon fær liðsstyrk.

Canon

Mynd: Getty Images

Franska félagið Lyon hefur fengið miðjumanninn Marc Crosas að láni frá Barcelona út þetta tímabil en frá þessu greindu forráðamenn Börsunga í dag.
Crosas kom til Barcelona árið 2005 en hefur ekki verið fastamaður í leikmannahópi aðalliðsins og aðeins leikið þrjá leiki á tímabilinu.

,,Það er gaman að þeir veðji á mig. Ég mun reyna að fá sem flest tækifæri. Að spila reglulega hjá Barcelona yrði mjög erfitt," sagði þessi tvítugi leikmaður við heimasíðu Barcelona.

,,Ég er að fara á góðan stað með góðum leikmönnum. Ég mun æfa með hópi leikmanna með há gæði eins og hjá Barcelona," bætti Crosas við.

Heimild: AFP

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.