þri 11. janúar 2022 20:28
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Coutinho mættur til Aston Villa - Dáist að Gerrard
Mynd: Aston Villa
Aston Villa staðfesti í síðudtu viku að félagið hafi náð samkomulagi við Barcelona um að fá Phillippe Coutinho á láni út tímabilið.

Hann mætti til Birmingham-borgar í kvöld eftir að atvinnuleyfi var klárt.

Hann er mjög spenntur fyrir því að vinna með fyrrum liðsfélaga sínum hjá Liverpool, Steven Gerrard, stjóra Aston Villa.

„Það er frábært að vera hér, þetta er frábært félag. Ég talaði mikið við Gerrard og hann sagði mér frá félaginu og hans áætlunum. Ég er ánægður að vera hér og hlakka til að njóta fótboltans."

„Ég hef þekkt Gerrard lengi. Ég spilaði með honum og lærði mikið af honum. Ég dáist að honum."

Það má búast við því að hann spili sinn fyrsta leik fyrir félagið gegn Manchester United á laugardaginn.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner